Brúðkaup á Hótel Búðum
Brúðkaup haldin á hótel Búðum eru okkur sérstaklega hugleikin. Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að gera daginn ánægjulegann og einstakann.
Hótelið:
Það eru 28 tveggja manna herbergi á hótelinu, þar af 1 svíta, 9 deluxe herbergi, 10 standard twin herbergi og 8 queen loftherbergi.
Mögulegt er að gera öll herbergin að einstaklingsherbergi ef þess er óskað.
Verðin eru breytileg eftir árstíma og þeim fjölda herbergja sem bókaður er.
Morgunverður er innifalinn í öllum herbergjaverðum. Mögulegt er að bæta við morgunverðinn og þá bjóða uppá brunch, með hrærðum eggjum, beikoni, pulsum og fleiru ef þess er óskað, en þá bætist við 1.900 kr aukagjald á mann. Þetta er eingöngu mögulegt ef allt hótelið er bókað undir brúðkaupið.
Aðstæður:
Móttökusvæðið og móttöku barinn:
Tekur um 120 manns í standandi boð, og er oft notað fyrir móttökur og kokteilboð. Ef veður leyfir er einnig mögulegt að framkvæma boðið utandyra. Einnig er mögulegt að nota svæðið undir dansleik og skemmtun eftir matinn.
Verð fyrir plötusnúð
Veitingasalurinn:
Tekur um 80 manns í sæti í mat, en hefur einnig verið notaður sem dansgólf eftir matinn.
Bárðarstofa á 2. hæð:
Tekur um 25 manns í sæti, ef um minni veislu er að ræða mælum við eindregið með þessum sal, hann hefur einstaklega fallegt útsýni yfir Búðarósinn.
Kortaherbergi:
Tekur 2-8 í sæti, er lítið og fallegt herbergi sem hentar einstaklega vel fyrir einkakvöldverð.
Utandyra:
Mögulegt er að hafa brúðkaupið allt eða að hluta til utandyra, en það er háð veðri.
Athöfnin:
Kirkjuna er hægt að bóka hjá sóknarprestinum, Guðjóni Skarphéðinssyni, í síma 435-6729. Hann getur bæði bókað fyrir ykkur kirkjuna og séð um athöfnina ef þess er óskað. Kirkjan tekur allt að 70 manns í sæti.
Einnig er möguleiki á annars konar athöfn, þá úti við eða inná hótelinu, þeir möguleikar eru skoðaðir sérstaklega eftir óskum og veðri.
Móttakan:
Móttakan er sniðin að óskum hvers og eins, hvort sem um ræðir kampavín, freyðivín eða aðrir drykkir, einnig er hægt að panta forrétti eða snittur.
Matur og vín:
Það sem okkar markmið er að uppfylla óskir gestanna, þá reynum við eftir fremsta megni að aðlaga mat og vín að smekk hvers og eins. Endilega látið okkur vita af öllum séróskum og við gerum okkar til að allir séu ánægðir.
Skreytingar:
Skreytingar eru eftir óskum hvers og eins, ef þess er óskað þá er salurinn, móttakan eða önnur svæði skreytt eftir óskum brúðhjónanna. Við getum séð um að útvega það sem til þarf. Verð á skreytingum er breytilegt og fer eftir árstíma og framboði.
Ljósmyndara, hárgreiðslumeistara og blómaskreyti getum við bókað ef þess er óskað.
Allur matur og vín er keypt af Hótel Búðum og er verðið samkvæmt matseðli eða samkomulagi.
Fyrir óskir um nánari eða fleiri upplýsingar endilega hafið samband við móttöku Hótel Búða í síma 4356700 eða á budir@budir.is