Matsölustaðurinn á Búðum

„Mekka Íslenskrar matagerðar“ Maturinn á Búðum hefur lengst af verið eitt helsta aðdráttarafl staðarins og er margrómaður fyrir einstaka fiskrétti, villibráð, óviðjafnanlega forrétti og ógleymanlega eftirrétti.

Kvöldverður á Búðum er með því rómantískara sem gestir hótelsins upplifa. Í mögnuðu umhverfi náttúrunnar, með Snæfellsjökul í augsýn – matarveisla og drykkjarföng á heimsmælikvarða, þetta er umgjörðin utan um ógleymanlegt kvöld á Búðum. Það skyldi heldur engan undra þegar einn helsti matgæðingur Íslands sagði að að á Búðum væri Mekka íslenskrar matargerðar.

Björgvin Mýrdal færir þér lystisemdir matargerðar, ekki aðeins matur á diski, heldur einstök upplifun sem er órjúfanleg staðnum. Lögð er áhersla á einstaklega ferskt hráefni í hæsta gæðaflokki, með fisk og villbráð fremst meðal jafningja.

Með heimilislegum stíl skapar staðurinn traustvekjandi og notalega stemningu þar sem fyrsta flokks þjónusta starfsfólksins tryggir frábæra dvöl. Það er skoðun okkar að maturinn á Búðum eigi að veita þér leið á áður gleymar slóðir og líka að opna þér nýjan heim fyrir bragðið.